Já ég er nú ekki beint búin að vera sú duglegasta í bloggheiminum undanfarið, þrátt fyrir að margt hafi gerst.
Við Ásgeir fórum til Austurríkis að skíða þann 19.jan-26.jan svo að það
var sjúklega mikið að gera hjá mér í skólanum alveg fram að því og svo
líka þegar við komum aftur heim og það er enn mikið að gera. Það
styttist í miðmisserisprófin sem að byrja í næstu viku svo að mér
sýnist að það verði mjög mikið að gera hjá mér alveg fram að páskum

En það er alltaf þannig að þegar það er mikið að gera í skólanum þá
finnst mér alltaf alveg ofboðslega mikilvæt að fara að lesa bloggsíður
allra vina minna

Held það sé einmitt líka ástæðan fyrir að ég
ákvað að blogga núna þ.e. að ég á að vera að læra!!!!

En já það var crazy gaman í Austurríki

Mikið skíðað og svonna.....
En já svo er mjög smitandi "sjúkdómur" að ganga í vinnunni hjá honum
Geira og það er einmitt ólétta. Það eru 6 menn að vinna í fyrirtækinu
og fyrsta af fjórum börnum sem að eru að koma var að fæðast, þannig að
þá eru "bara" 3 eftir. En ég er EKKI ólétt svo að við höfum það alveg á
hreinu!!!!

Já svo er aðalfundur hjá HSSK á eftir, ætli maður mæti nú ekki og borgi árgjaldið með bros á vör og svonna.....
Annars hvet ég alla sem hafa gaman að góðum bloggfærslum að lesa
bloggið hjá Salóme (það er linkur til hliðar) en hún fær sko
bloggverðlaun ársins fyrir að vera duglegasti bloggarinn sem að ég
þekki, til hamingju Salóme
Já æj ég nenni ekki að skrifa meira....eða jú eitt: við vorum að fá
huges sjónvarp sem er við það að vera of stórt fyrir okkar litlu íbúð
en ok, svo vorum við líka að kaupa okkur geggjað flottan prentara sem
að skannar líka og ljósritar og allt
Jæja núna er ég hætt...vona að einhver sé enn að lesa þessa langloku mína.....
Bæjó