What´s going on!
13.05.2007 22:54:57 / sigga

Hitt og þetta....

Jæja....LOKSINS LOKSINS, langþráður draumur hefur ræst þ.e.a.s. sumarfrí eða já allavega frí frá skólanum :)

Er búin að gera ansi margt síðan síðast svo að ég ætla að setja inn nokkra punkta svo að þetta verði ekki 17 bls ritgerð um það hvað ég er búin að vera að gera. Here it come's:

  • Atvinnuviðtal
  • Búin í 3 prófum
  • Búin að vera mikið í ræktinni síðan ég kláraði prófin
  • Var að vinna við kosningarnar
  • Búin að kíkja aðeins í smere eins og við systurna köllum hana (smáralind fyrir þá sem að ekki vita hvaða smere er)
  • Chilla og margt, margt fleira....... ;)


Salóme kom til landsins og eyddi ég einu hádegi með henni í prófatímanum mínum og fórum við út að borða og ég sé sko ekki eftir að hafa gefið mér tíma í það :) Vest að hafa ekki getað gert eitthvað meira með henni. En ef að þú ert að lesa þetta Salóme þá segi ég bara takk fyrir komuna og þú verður nú að kíkja aftur heim í sumar ;)

 

Merkilegt hvað maður gleymir alltaf öllu sem að maður ætlaði að blogga þegar maður sest niður og byrjar....

En anyway þá er ég að verða 21.árs gömul næstkomandi laugardag og það sem að meira er að Ásgeir er að fara að útskrifast :) Það sem aftur á móti verra er að ég veit ekki hvað ég á að gefa drengnum!!!!! Ef að einhver getur hjálpað mér þá vinsamlegast hringið í mig, sms-ið eða sendið e-mail eða eitthvað I AM LOST and need help!!! Svo er kannski partý ef að Guð lofar.
UNNUR SVEINS ég vona að þú sért búin að redda the thing sem að við töluðum um?????

Jæja best að halda áfram að chilla...

Kv.Sigga

Sveinsdottir skrifaði
hæ elsku krúttí búttí krúttið mitt uuuuuuuuuuuuuuuu jááááá varðandi það!!! það er ekki ALVEG búið að redda the thing :S :S :S :S ég veit ... ég verð bara í ónáðinni næstu 36 árin :( en samt... þú ert samt frábær:D þrátt fyrir að ég verði í ónáð!! en allavega er að vinna eg heyri í þér soooon b.k Unna beiler.is :(
Salóme Mist skrifaði
Til hamingju með að vera komin í sumarfrí! Þú átt það sannarlega skilið að fá að slappa smá af ;) Takk kærlega fyrir að bjóða mér í hádegismat segi ég nú bara. Yndislegt að hitta þig eins og ávallt Sigga mín :) Vona líka að við munum hittast e-ð í sumar... en sumarplönin mín eru ennþá langt frá því að vera komin á hreint :S Vona að þið munið eiga frábæran laugardag ;)
Hanna lára skrifaði
Hæ hæ, ég rakst á síðuna þína og ákvað að skilja eftir smá skilaboð:) anyway til hamingju með að vera búin í prófunum! í sambandi við lau kvöldið þá vorum við búin að vera að spá í að halda ponsu teiti á lindargötunni... hvernig eigum við að haga þessu ef þið verðið einnig með teiti? láttu mig vita gella. seeja. kv hanna
Linda skrifaði
Hæ sæta...til hamingju með að vera komin í sumarfrí. Hvar ertu annars að sækja um vinnu?? Hlakka til að hitta þig skvísó!!!
Sigga skrifaði
VEIIIIIII mörg komment :) Unnur: Já Unnur mín ég er ekkert að deyja úr ánægju með þetta!!!!! :( Salóme: Takk, takk :) Takk sömuleiðis. Hanna: Takk, alltaf gaman að vera í sumarfríi :) En já gott að þú fannst síðuna ;) Og já laugardagurinn....Ásgeir verður með partý hér á laugardagskvöldið, spurning hvort að þið komið ekki bara frekar til hans???? :) Linda: Takk fyrir. Var að sækja um hjá Orkuveitu Reykjavíkur og JEIJJJJJ ég fékk jobbið :)
Ásgeir skrifaði
halló skvísa, ætlaði bara að henda inn kveðju þar sem ég geri það nú ekki á hverjum degi. Nú er er bara hversdagsleikinn tekinn við eftir tælandsbruna, fínt barasta. bið að heilsa í bili sæta. sjáumst. kv Geiri

Skrifa athugasemd:

Það er nauðsynlegt að fylla inn í reiti merkta með *

Protected by FormShield
Vinsamlega skrifaðu inn stafina 4 sem eru á myndinni hér fyrir ofan.

Athugaðu að IP talan þín () verður skráð með færslunni.

Klukkan